30.11.2007 | 11:25
Dýrt heitt vatn
Eitthvað finnst mér bogið við þessa frétt. Maðurinn stelur 3 tonnum af heitu vatni og er búinn að greiða fyrir það kr. 260.000!! Ég man nú ekki rúmmetraverðið svo nákvæmlega en ég hélt að það væri einhversstaðar í krinum 100 kallinn, þannig að það er ekki skrýtið að hann hafi reynt að stela þessu rándýra vatni. Í minni eðlisfræði er 1 rúmmetri = 1 tonn. Ef einhver veit betur endilega útskýra það fyrir mér.
![]() |
Stal 3 tonnum af heitu vatni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2007 | 20:54
Hagnaður fyrir útvalda
Er ekki málið að það eru aðeins útvaldir sem mega hagnast á þessari útrás eigenda símans. Skilmálarnir eru búnir að vera klárir allan tímann og þá á auðvitað að standa við þá þó svo að aðrir en núverandi eigendur símans hagnist nú eða tapi á þeirri sölu hlutabréfanna sem búið var að leggja upp með á þessum tímapunkti. Og það sem Geir H Haarde segir að hlutabréfin verði betri markaðsvara að loknum þessum fresti er bara algjörlega fáránleg ástæða til að gefa þennan frest á að standa við gerðan samning. Og væri ekki bara allt í lagi að almenningur ætti hlutabréf sem væri betri markaðsvara og hagnaðist pínulítið líka.
![]() |
Steingrímur: Hlutabréf Símans á óþægilega hagstæðu verði? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2007 | 18:08
Kassakvittun
Ég er búinn að starfa sem verslunarstjóri um nokkurra ára bil og hef alltaf lagt á það áherslu við mitt starfsfólk að afhenda viðskiptavinum kassakvittun að loknum viðskiptum. Það fer í taugarnar á mér þegar ég er spurður hvort ég vilji kvittun, sem virðist vera orðin viðtekin venja í verslunum í dag. Frekar vil ég að kvittunin sé rétt viðskiptavini og hann hefur þá frumkvæði að því að afþakka hana. Varðandi misræmi milli kassaverðs og hillumiða þá á viðskiptavinurinn alltaf að njóta lægra verðsins ef misræmi er þar á milli, það eru í raun lög.
![]() |
Fallist á tilmæli talsmanns neytenda um samræmi hillu- og kassaverðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Senn hleypt á Vatnsfellsvirkjun eftir viðgerð
- Rask í flugstöðinni fram á næsta vor
- Sögulegur dagur sem gefi von um frið
- Fimmtán fyrirtæki taka þátt í forvali
- Ragnar sótti soninn eftir barnsrán
- Dregur úr vindi og fer að rigna
- 408 börn á biðlista í borginni
- Andlát: Þórir Jensen
- Laxness hverfur úr skólum landsins
- Horfur í efnahagslífi versna enn
Erlent
- Besta lyfið er friður
- Ráðherra ætlar að greiða atkvæði gegn vopnahléssamkomulaginu
- Þjóðarleiðtogar fagna friðarsamkomulagi
- Þetta snýst meira en bara um Gasa
- Gíslarnir frelsaðir á næstu sólarhringum
- Ísrael og Hamas ná saman um friðarsamkomulag
- Vopnahlé í nánd: Var rétt í þessu að fá skilaboð
- Tryggi öryggi Frelsisflotafólks
- Vænta undirritunar vegna Gasa að morgni
- Fimm handteknir í stórfelldu kókaínmáli