8.11.2009 | 22:16
Öruggt
Þetta var nokkuð öruggur sigur á annars sterku liði Stjörnunnar, sem mörgum finnst hafa komið á óvart í haust. En ég held að enginn eigi að vera hissa á stöðu þeirra í deildinni, þeir eru með nokkra frábæra leikmenn t.d. Justin Shouse sem er líkleg einn af 10 bestu erlendu leikmönnum sem hér hafa leikið. Þá er Jovan Sdradevski, eða hvað hann heitir sá ágæti maður, líka hörku körfuboltamaður. En líklega er það breiddin sem fer með möguleika á að klára þetta í einu af efstu sætum deildarinnar. En þeir áttu sem sagt aldrei séns i kvöld, og vonandi eru mínir menn að ná sínum fyrri styrk þó mér finnist þeir ekki hafa verið mjög sannfærandi í öllum leikjum sem ég hef séð með þeim í haust.
![]() |
Bikarmeistararnir úr leik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2009 | 14:48
Eldurinn var að leysa sig í bílinn!!!!!!!!!!!!!!!!
Getur einhver sagt mér hvað þetta þýðir. Ég veit að eldur getur læst sig í hluti, en ég vissi ekki að hann leysti sig í hluti. En svo lengi lærir sem lifir. En ef að líkum lætur verður búið að leiðrétta þetta innan skamms og þá lítur þetta blogg illa út.
En fyrir mestu var að enginn meiddist.
![]() |
Sluppu naumlega úr bruna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 8. nóvember 2009
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar