31.3.2008 | 17:55
Íhugaður??????????
Hvers lags eiginlega orðskrípi er þetta? Hann var íhugaður í eitthvert hlutverk. Nú verðið þið mbl.is fólk að fara að gera kröfur til þeirra sem fá að setja inn texta þarna hjá ykkur. Það er eiginlega algjört lágmark að skrifendur hafi tilfinningu fyrir íslensku máli og hvernig við notum það. Hann kom kannski til greina í hlutverk, en hann var ekki íhugaður, þó leikstjórinn hafi kannski íhugað að fá hann í hlutverkið. Svo er kannski annar vinkill á þetta, kannski kann ég bara ekki nóg í íslensku, hver veit?
![]() |
Christopher Walken 65 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 885
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála þér Gísli þetta er afar sérkennilegt orðalag,
Þú ert íhugaður í þetta starf, nei maður tekur ekki svona til orða.
Kveðja Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 18:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.