13.1.2011 | 19:27
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Ég veit ekki alveg hvort ég á að þora að segja það sem mig langar að segja núna. En þannig er mál með vexti að ég þurfti að skreppa á Heilsugæsluna hér í Keflavík. Ekkert mál með það, hitti lækninn og fékk úrlausn minna mála og svona. En það sem stakk mig var að innan við afgreiðsluborðið voru taldist mér til einir 4 starfsmenn sem stóðu þar aðgerðar/verkefnalausir og spjölluðu saman. Þetta er ekki fyrsta skipti sem ég sé svona stöðu þarna og fólk sem ég hef sagt frá þessu taka undir með mér. Kannski hitti ég bara svona á að það sé akkúrat kaffitími starfsmanna þegar ég kem, en samt held ég að þetta sé ekki kaffistofan þeirra. Punkturinn sem ég er að benda á er sá að það er verið að tala um samdrátt og sparnað. Þarna sé ég ekki annað en hægt sé að spara einhverjar krónur. Það er alveg öruggt að væri svona staða uppi á mínum vinnustað yrði gripið til aðgerða til að spara peninga, enda strangt aðhald viðhaft í starfsmannahaldi. Ég bara varð að koma þessu frá mér, hafi einhver sem les þetta eitthvað við þetta að athuga, þá vil ég endilega fá svör og rökstuðning fyrir því ef þetta er tóm steypa sem ég er að fara með hér.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll , já það er ekki logið að okkur um niðurskurð hjá Heilbrigisstofnunum hér, og er það leiðinlegt að þeir sem enn starfa við þetta,skulu vera atvinnulausir í starfi, eða svo áhugalausir að þeir yrðu glaðir ef enginn kæmi þann daginn..en eins og með alla vinnu ,þá er gott að endurnýja mannskapinn ef leiði er kominn í hópinn og þetta fer að vera vélrænt.....
jóhanna njálsdóttir (IP-tala skráð) 16.1.2011 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.