Er þetta algengt?

Ætli þetta sé samskonar stykki og sonur minn sá falla af flugvélinni sem þurfti að nauðlenda á Keflavíkurflugvelli þann 27. júlí síðastliðinn. Ég hef hvergi séð neitt um það að nokkur hlutur hafi losnað af þeirri vél. En þannig háttaði til í því tilfelli að við fjölskyldan vorum að aka eftir Reykjanesbraut og sonur okkar 17 ára segist hafa séð hlut falla frá flugvél sem var nýlega búin að taka á loft. Síðan nálgumst við Keflavík og sjáum þá flugvél koma inn til lendingar, en á þessum tíma dags er lítið um að vélar séu að koma til landsins. Skömmu síðar sjáum við á netinu að flugvél þurfti að koma til lendingar vegna bilunar í hreyfli, en ekki orð um að eitthvað hafi losnað af vélinni. Við hringdum reyndar og létum vita af þessu og talað var við son minn af aðila frá rannsóknarnefnd flugslysa.
mbl.is Fleki fór af í aðflugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Jóhannesson

Það á víst að vera til í því að Boeing hafi látið flugvirkja þeirra flugfélaga sem reka 757 vélar festa þennan hlut á bolnum betur, þetta sé semsagt galli í framleiðslu eins og svo margt í Boeing 757, 767 og 737.

EN það er eins með öll flugfélög í dag að það er svakalegur sparnaður í viðhaldi.

Eins og t.d í tilfellinu hér í þessu myndbandi, þá er gert við sprungur fyrir flugtak með límbandi ( gíslatape ). Þetta er Mjög algengt.

Þú myndir ekki vilja vita fleira um bráðabyrgðaviðgerðir á farþegaþotum ;)

http://www.youtube.com/watch?v=N3srEUzISC0

Sigurður Jóhannesson, 16.8.2008 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gísli Sigurðsson
Gísli Sigurðsson
Ég er jólabarn, fæddur á annan jóladag rétt um miðja síðustu öld. Búinn að þvælast aðeins um landið en bý nú og starfa í Reykjanesbæ.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 716

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband