Færsluflokkur: Bloggar

Gangadeildir

Það eru ekki mörg ár síðan sýndar voru myndir af yfirfullum legudeildum á Landspítala og þar voru sjúklingar látnir hýrast í rúmum frammi á göngum fyrir allra augum. Eins slæmt og það er að þurfa að dvelja á sjúkrahúsi, sem ég persónulega sem betur fer hef ekki reynslu af nema sem aðstandandi, þá hlýtur það að vera hálfu verra að vera liggjandi á göngum sjúkrahúss. En ef það vantaði legurými fyrir nokkrum mánuðum, hvernig er þá hægt að fækka þeim núna? Ég er bara svo einfaldur að ég skil það ekki.
mbl.is Legurúmum fækkað á Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörmung

Ég var að hugsa það hvort þeir hefður belgt sig út af skyri mínir menn fyrir leikinn á móti Njarðvík í kvöld. Þvílíka hörmung hefur maður sem betur ekki séð til þeirra. Maður fékk reyndar smá tilfinningu fyrir því hvernig mönnum hefur liðið í gegnum árin þegar þeir hafa verið að lenda fyrir hraðlestinni.

En annars er ljós punktur í þessu, nú getur leiðin aðeins legið upp á við, næst eru það KRingar sem töpuðu í kvöld fyrir Stjörnunni sem borin er uppi af stjörnuleikmanninum Justin Shouse.


mbl.is Njarðvík vann Keflavík - Marvin góður gegn Blikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er Keflavík??

Ég hef tekið eftir því að umfjöllun um leiki Keflavíkur hefur verið af mjög skornum skammti þetta haustið. Ég man ekki eftir því að komið hafi ein einasta mínúta á sjónvarpsstöðvunum úr leikjum þeirra. Þeir eru enn í toppbaráttu, búnir að tapa aðeins einum leik. Nú ætlaði ég að fylgjast með leik Keflavíkur og ÍR á KKÍ Live, en nei ekkert. Ég veit ekki hverjum það er að kenna, gruna að það séu heimamenn sem eru að klikka á þessu. Þannig að hjálpast allt að við að gera þá nánast ósýnilega.
mbl.is Öruggur sigur Íslandsmeistarana í Grafarvogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skortur á breidd

Þetta er það sem ég var búinn að spá að gæti gerst hjá Stjörnunni. Þeir hafa hreinlega ekki næga breidd í sínum leikmannahóp til að geta orðið meðal efstu liða í þessari deild. Nú er Fannar meiddur en er væntanlegur fljótlega. Justin Shouse skoraði 38 stig, enda er maðurinn algjör snillingur. En að einn maður beri uppi liðið í gegnum heilt mót gengur bara ekki upp. Nú er bara að vona að mínir menn í Keflavík taki ÍRingana á morgun.
mbl.is Tindastóll stöðvaði Stjörnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öruggt

Þetta var nokkuð öruggur sigur á annars sterku liði Stjörnunnar, sem mörgum finnst hafa komið á óvart í haust. En ég held að enginn eigi að vera hissa á stöðu þeirra í deildinni, þeir eru með nokkra frábæra leikmenn t.d. Justin Shouse sem er líkleg einn af 10 bestu erlendu leikmönnum sem hér hafa leikið. Þá er Jovan Sdradevski, eða hvað hann heitir sá ágæti maður,  líka hörku körfuboltamaður. En líklega er það breiddin sem fer með möguleika á að klára þetta í einu af efstu sætum deildarinnar. En þeir áttu sem sagt aldrei séns i kvöld, og vonandi eru mínir menn að ná sínum fyrri styrk þó mér finnist þeir ekki hafa verið mjög sannfærandi í öllum leikjum sem ég hef séð með þeim í haust. 
mbl.is Bikarmeistararnir úr leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldurinn var að leysa sig í bílinn!!!!!!!!!!!!!!!!

Getur einhver sagt mér hvað þetta þýðir. Ég veit að eldur getur læst sig í hluti, en ég vissi ekki að hann leysti sig í hluti. En svo lengi lærir sem lifir. En ef að líkum lætur verður búið að leiðrétta þetta innan skamms og þá lítur þetta blogg illa út.

En fyrir mestu var að enginn meiddist.


mbl.is Sluppu naumlega úr bruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlega létt.

Þetta var ótrúlega létt hjá mínum mönnum í kvöld. Fjölnir stóð í Grindvíkingum um helgina meðan Keflavík tapaði fyrir Stjörnunni. En það sem var sérstakt við leikinn og ég man ekki eftir að hafa séð áður, var að allir 12 leikmenn Keflavíkur skoruðu.
mbl.is Stórsigur Keflvíkinga gegn Fjölni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stafsetning enn og aftur á mbl.is

Hvað er með stafsetningu hjá þeim sem skrifa fréttir á mbl.is, er engin krafa um lágmarks þekkingu á stafsetningu þeirra sem ráðnir eru þarna til starfa? Maður sem gegnir starfi hefur ekki gengt því um einhvern tíma heldur gegnt því. Þetta er kannski smásmugulegt en þetta er dropinn sem holar steininn, því lengur sem svona villur fá að vaða uppi því meiri líkur á að það þyki eðlilegt ástand að skrifa bara einhvern veginn þannig að það skiljist bara svona nokkurn veginn.

,,Árni Þór hefur gengt stöðunni frá því í mars 2007. "

Set þetta hér með svo sjáist hvernig þetta var skrifað þegar þeir verða búnir að leiðrétta vitleysuna.


mbl.is Samningurinn við Árna Þór endurnýjaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hræddir

Munurinn á Keflvíkingum í kvöld og öðrum liðum er sá að þeir komu ekki hræddir inn í þennan leik. Kristján greinilega búinn að kortleggja vel veikleika varnar FHinga og notaði það sem virkar á þá: hraðann. Glæsilegt. Nú geta önnur lið fengið spóluna hjá Rúv og skoðað hvernig hægt er að leggja Fimleikafélagið.
mbl.is Keflavík sló FH út úr bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myntkörfulán

Þessi svonefndu myntkörfulán eru að fara illa með marga. En eru þetta raunverulega lán í erlendri mynt eða eru þetta í raun krónulán með gengistryggingu? Mér þætti gaman að vita hvort þetta hefur verið kannað og þetta sé kannski ein birtingarmyndin á veðmálinu gegn krónunni.
mbl.is 115 milljarða erlend bílalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gísli Sigurðsson
Gísli Sigurðsson
Ég er jólabarn, fæddur á annan jóladag rétt um miðja síðustu öld. Búinn að þvælast aðeins um landið en bý nú og starfa í Reykjanesbæ.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 639

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband